Hugurinn ber þig hálfa leið... ;)
15.12.2007 09:39:15 / stefania

Ný síða

já ..ég er komin með leið á þessu bloggi, á bloggar síðu svo ég er að pæla í að færa mig þangað og kannski maður verði þá e-ð virkari :)

 www.stefaniah.bloggar.is 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 15:39:49 / stefania

Meyja

 Þetta á held ég aðeins og vel við mig ;) En 3 próf búin - 2 eftir og næsta eftir viku, svo það er smá "chill" framundan.  Ætla að flikka upp á þessa síðu bráðlega.. en ætla að leggja mig aðeins fyrir æfingu.

Ætla að bæta aðeins við þetta ;) Var að koma heim af HÖRKU æfingu :) Ótrúlega jákvæð.... Ég og Helga að fýla okkur vel :D Frábært, mjöög jákvætt... Hraðinn og úthaldið að koma :haha: Gátum ekki haldið okkur á tímunum í 400m (8 sek of hratt) og 300 (10sek of hratt) Sem var 2 min seinna :haha: Held að það sé ekkert nema jákvætt ;) En ég er farin í sund og svo er það sveitin góða á morgun ;)

Meyjan


Jarðbundin og dugleg

Hin dæmigerða Meyja er jarðbundin og raunsæ. Hún hefur sterka rökhugsun og sérstaka hæfileika og áhuga í sambandi við viðskipti, miðlun, menntamál og þjónustustörf. Meyjan er iðulega dugleg og iðin og á oft erfitt með að sitja kyrr og slaka á. Sumar Meyjur taka til dæmis aldrei frí eða fara að vinna eitthvað annað í fríinu og fá samviskubit ef þær hafa ekki eitthvað fyrir stafni. Oft er Meyjan eirðarlaus og þá einkennist framkoma hennar af hreyfanleika, málgefni og vissu stressi.


Skýrleiki

Meyjan hefur skarpa hugsun og það er algengt að sjón hennar sé með afbrigðum skýr, þ.e.a.s. hún sér veikleika í skýru ljósi og er meðvituð um útlit, klæðaburð og hegðunartakta fólks. Hún er nákvæm og sér einstök smáatriði hvers máls. Nákvæmni á smáatriði er það mikil að stundum tekur hún ekki eftir heildarmyndinni, trén skyggja þá á skóginn. Meyjan er einnig næm á hið líkamlega, á líkama sinn og útlit, og það sem hún borðar og lætur ofan í sig. Áhugi á mataræði, heilsumálum, líkamsrækt og hollustu er því algengur.


Fullkomnunarþörf

Eitt sterkasta einkenni Meyjunnar er fullkomnunarþörf. Ekkert er nógu gott. Alltaf þarf að laga og betrumbæta. Hún gerir því miklar kröfur til sín (og annarra) og finnst að hún þurfi stöðugt að vanda sig og ná fullkomnu valdi á viðfangsefnum sínum. Þessi fullkomnunarþörf er bæði blessun og bölvun. Hún leiðir til þess að Meyjan á til að vanmeta sjálfa sig en einnig til þess að hún leysir verkefni sín vel af hendi og er treystandi fyrir því sem hún á annað borð tekur að sér.


Skörp hugsun

Meyjan hefur að upplagi raunsæja og gagnrýna hugsun og sérstakan hæfileika til að greina mál í smáeiningar, raða niður í flokka og leita að villum. Meyjan er hinn fæddi gagnrýnandi. Hugsun hennar er einnig vel til þess fallin að læra tungumál eða leggja stund á fræðistörf. Auðvitað fást ekki allar Meyjar við slík mál en samt sem áður búa þær yfir þessum eiginleikum. Ef þær fást ekki við fræðilega gagnrýni taka þær í staðinn vini sína, ættingja eða vinnufélaga fyrir og finna veikleika í fari þeirra, oftar en ekki í þeim tilgangi að hjálpa eða laga það sem Meyjan telur að hafi farið miður.

Viðskipti

Meyjan hefur oft áhuga á verslun og viðskiptum, enda ríkt í eðli hennar að vilja framkvæma og hreyfa við hlutum, eða láta málin ganga áfram. Kyrrstaða er andstæð eðli hennar, enda er Meyjan breytilegt merki sem þarf á hreyfingu og fjölbreytni að halda. Hún verður eirðarlaus ef hún hefur lítið fyrir stafni. Meyjan hefur í raun gaman af því að vinna, kannski vegna þess að hún á erfitt með að vera kyrr. Eitt helsta einkenni margra Meyja er að vera á sífelldum þönum, hlaupandi fram og aftur, alltaf að gera eitthvað.

Vinna og árangur

Til að næra lífsorku sína þarf Meyjan að sjá eftir sig áþreifanlegan árangur. Ef hún er fræðimaður er æskilegt að hún geti bent á bók sem hún átti þátt í að semja, ef hún er handverksmaður þarf hún að sjá verk sín í notkun. Ef til vill þarf hún fyrst og fremst að hafa það á tilfinningunni að starf hennar hafi tilgang og gagnist öðrum. Meyjan er merkið sem hefur það verkefni að koma uppskerunni í hús og búa í haginn fyrir komandi haust og vetur. Hún þarf að vinna


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 21:05:11 / stefania

Hugurinn ber þig hálfa leið

 

Get - Ætla - Skal

~ Stefanía H.


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 13:37:32 / stefania

Krampa kona

Jáháá nafnið krampa kona á heldur betur vel við mig þessa dagana ! Undanfarið er ég nefnilega búin að vera að fá krampa um allan líkaman. Búin að fá 2* krampa í kálfana síðan í okt. sem er kannski alveg hægt að útskýra með æfingunum, en svo er ég alltaf að fá krampa í vöðvann sem stjórnar litla puttanum, krampa í tærnar og ilina helst þá þegar ég syndi og geri magaæfingar. Þetta er ekki búið enn því að fyrir tveim dögum tók ég upp á því að fá krampa í upphandleginn og svo síðan í gærkvöldi er ég búin að vera að fá krampa kippi í brjóstvöðvann (held frekar en hjartað!). Lýst ekki lengur á blikuna. Svo ef þið lumið á einhverjum góðum ráðum þá eru þau vel þegin :)

En æfingarbúðir um helgina :haha: Held að þetta verði fínustu æfingar og skemmtun :D Fyrir utan það kannski að ég er orðin svona frekar þreytt... búin að taka 9 æfingar í vikunni takk fyrir takk. Held að formið fari að sýna sig næstu vikurnar, hraðastillirinn er reyndar ekki enn kominn í gang... Búin að vera svoldið mikið í því að fara ótrúlega fersk á stað, taka aðeins og mikið á því sem kemur svo bara niður á næstu settum. En ég held að þetta komi allt saman með tímanum og meiri hlaupum.

Annars er bara allt gott að frétta :) 3. vikur eftir að skólanum, svo bara próf og æfingar :D Get ekki beðið ;)

En ætla ekki að hafa þetta lengra...

Megið endilega kommenta svo ég sjái hvort það sé einhver að lesa þetta, eða ég sé bara að skrifa þetta fyrir sjálfa mig.. sem er svosum allt í lagi :)

Góða helgi

~ Stefanía 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 20:57:34 / stefania

Dautt blogg :)

Búið að vera BRJÁLAÐ að gera.. hélt á tímabili að kennararnir höfðu ákveðið alsherjar samsæri gegn mér.. en það er búið núna ;) Er reyndar að skrifa ansi skemmtilega ritgerð núna um Hveri og Hverasvæði á Íslandi - heilar 8. blaðsíður svo að ef þið lumið á einvherju áhugaverðu tengdu þessu þá bara endilega hafa samband :haha:

En æfingarnar komnar á skrið :D and I like it a lot :haha: 8) Loksins farin að hlaupa e-ð af viti ;) Formið allt að koma :)

Lítið svosum að frétta.. Búdapest um seinustu helgi, þið sem eruð á Myspace eru myndirnar þar ;) www.myspace.com/stefania_h. En þetta var mjög fín ferð ;) löbbuðum mikið og margt fallegt að skoða :D

Rúmur mánuður eftir að skólanum svo bara jólaprófin :D það styttist í þetta allt saman :haha: :haha: Búið að vera ekkert smá hratt að líða ;) það er ekkert nema gott

En ætli maður haldi ekki áfram að læra :)

Veturinn er kominn :D

~Stefanía

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 13:09:40 / stefania

Where there is a will there is a way

 

Einn tími og svo komin í 4 daga helgar frí :D Niceee :P Ætla að nýta þetta frí vel til að hlaða batteríin, æfa og skrifa eins og eina ritgerð ;) Klára kannski líka að horfa á 1. seríu af bráðarvaktinni :haha:

En æfingarnar ganga bara mjög vel :haha: Er búinn að vera í FULLT af rannsóknum út af þessu orkuleysi mínu. Kemur ekkert í ljós og ég viðrist bara vera alheilbrigð ;) sem er bara gott mál. Er búinn að vera á mjólkurlausu fæði núna í rúman mánuð... veit ekki alveg hvað kemur út úr því, ætli ég prófi ekki að taka glúten út næst. Verð að vera þolinmóð :D Samt mjög stolt af mér að hafa getað tekið ALLA mjólk og mjólkurafurði út þar sem ég er svo mikil mjólkur manneskja !

Búdapest á fimmtudaginn eftir viku með honum Bjarna :haha: það verður eflaust gaman ;) fyrir utan það að ég missi af jarðfræði ferð og þarf að gera 8-10 bls. heimildaritgerð um náttúru á suðurlandi í staðinn 8|

Styttist í pottinn :D Allt orðið reddý nema einhver pípari á eftir að koma og tengja vatnsleyðslurnar ;)

Komin með myspace síðu - kann ekkert á þetta en hún er www.myspace.com/stefaniah

Mæli líka með blogginu hennar Heiðdísar í Dóminíska ! www.blog.central.is/heiddisrut

Ekkert meira að frétta af þessu sinni :) Kannski ég noti fríið til að henda inn nokrum myndum ;)

Hafið það gott

~ Stefanía


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 10:09:07 / stefania

Veturinn að koma ;) Eintóm gleði

Góðan og blessaðan daginn :) Nú er bara veturinn að koma :!: Mamma nefndi það einmitt í morgun þegar hún var að skutla mér í skólan (algjör letingji -tekur mig 5 min að hjóla) að maður þyrfti að fara að setja húfu á hausinn á sér... En hvað með það. Vetur þýðir bara eintóm gleði hjá mér ;) eða svona næstum.

Æfingarnar að fara að byrja svona smá saman í næstu viku :) Byrjum bara létt, aðeins byrjuð að synda. Reyndar endaði seinasta sundferð ekki nógu vel :lol::S Leið næstum yfir mig inn í sturtuklefanum, veit ekki alveg afhverju þar sem það var allt í góðu með mig alveg þangað til ég fór inn í sturtu klefann. Er alvarlega farin að halda að blóðsykurinn- eða blóðmagnið í líkamanum mínum sé e-ð skert. Það er ekkert sem lætur mig halda að þetta hafi stafað af áreynslu :!: Trúi ekki að ég sé orðin það slöpp....

En skólin kominn á full swing :!: Veit ekki hvernig þetta verður í vetur þar sem ég er varla búin að gera neitt annað en að læra alla þessa vikuna :!: En þetta fylgir víst ;) verð bara að skipuleggja mig úper vel.

Búin að vera í sveitinni með Bjarna seinustu 2 helgar ;) elta rollur og reyndar líka Bjarna á fjórhjólinu :D Heimsku skeppnur þessar rollur :!: haha

Fyrirlestrar hjá ÍSÍ um helgina ;) Lýst bara ágætlega á dagskrána þar, reyndar búin að heyra held ég alla fyrirlestrana áður. En maður getur alltaf lært e-ð nýtt frá hlutunum. Fór í svakalegt vöðvahámarks styrktar próf á þriðjudaginn - þvílík átök.

En best að halda áfram að læra 8)

- Stefanía


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 19:26:28 / stefania

Soðnir bananar

Þá er seinasta móti sumarsins lokið. Gekk svona misvel… Finnst 4*100m boðhlaupið (Björg,Berglind,Íris, Ég) standa hæst varðandi árangur minn um helgina. Reyndar líka alveg þokkalega sátt við 200m og bæting í langstökki ;) Veit samt að ég get stokkið mun lengra :P En þetta var fínasta mót. Frekar kallt fyrri daginn sem er þess valdandi að ég sit núna heim með hor :/ Heyri varla neitt fyrir hellum sem ég fékk í fluginu í gær og finn EKKERT bragð og finn enga lykt sem er ömurlegt. Hundleiðinlegt að borða.. ákvað að baka mér kanelsnúða en nei nei finn ekkert bragð af þeim og brendi helmingin af þeim því ég fann ekki lyktina af þeim í ofninum :!: En jæjja það er ekki hægt að svekkja sig yfir því.. margir í heiminum sem hafa það mun verr en ég ;)

 

Tók þá ákvörðun eftir mótið um helgina að fara ekki út á NM. Ég var með ákveðin markmið í huga fyrir þetta mót sem ég var búin að vera að stefna á lengi. Í staðin fyrir að fara þangað út og svekkja mig enn frekar þá ætla ég bara að fresta þessu markmiði mínu um ár og fara að einbeita mér að því að komast af því hvað sé í gangi í líkamanum mínum :(  Fullt af frábæru fólki í kringum mig sem er tilbúið að hjálpa mér og ég er staðráðin í því að koma sterk inn í næsta undirbúningstímabil. Það þýðir ekkert að gefast upp :!:

 

Fæ bílprófið langþráða á morgun :haha:

Set inn myndir frá helginni fljótlega ;)

 Farin að borða fiskinn minn sem gæti alveg eins verið soðin bananni :lol:

~Stefanía  uppgefna


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 14:50:07 / stefania

BÍLPRÓF

Jeiii búin að ná bílprófinu :haha: Tók þetta með stæl og fékk enga villu 8) Verð að monta mig aðeins :P En þótt ég sé búin að ná bílprófinu er ég ekki komin með prófið, en það kemur á þriðjudaginn - þegar ég á afmæli ;) 28.ágúst :D

MÍ 15-22 ára um helgina á Laugum ;) Það verður frekar MIKIÐ að gera hjá mér.. En ég ætla að keppa í 100m,200m,400m,800,4*100m,4*400m,langstökki og kringlukasti :haha: :lol: Reyndar einhver spurning með 800m - er á milli riðla og úrslita í 200m, en þetta kemur bara allt í ljós. Við Fjölnisliðið tökum þetta með stæl og fljúgum til Akureyrar og keyrum svo þaðan :D ;) Þetta verður eflaust svaka stuð ;) Go Fjölnir :!: :haha:

Skólin að komast á skrið. Lýst bara mjög vel á þetta ;) allt morandi í busum :lol: sem er bara gaman :haha:

pskar1002.jpg Hópknús picture by stefaniah

Heiðdís lagði af stað í mrogun til Dóminíska Lýðveldisins :!: En hún mun vera þar sem skiptinemi í 10 mánuði ;) Ég og Íris Anna fórum og kvöddum hana í gær :) Íris Anna öruglega svona í 4 skiptið ;)En ég á eftir að sakna hennar miiiikið :cry: En þið getið fylgst með henni hér - www.blog.central.is/heiddisrut

Set inn fuuult af myndum eftir helgina :haha:

~* Stefanía

000_0084.jpg picture by stefaniah


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 10:44:52 / stefania

Morgunhaninn !

 

Jæjja nú jæjja :) Ég búin að vera vakandi síðan klukkan 8.45 og það er laugardagur :!: :| Búin að vera í sumarfrí seinustu vikuna, öll fjölskyldan reyndar ;) mjög fínt...  Fer að styttast í 17 ára afmælið og bílprófið :) :P Finnst ég reyndar svo lítil og aumingjaleg í þessari umferð að það er ekki víst að ég þori svona fyrst um sinn að vera ein í bílnum :S:lol:

Ekki má gleyma því að Svenni átti afm´æli í gær :D Fórum í bíó með honum ásamt nokkrum vinum á Rush hour 3 ;) Frekar svona fyndin mynd, ekki vön að hlæja í bíó en kom svona nokkrum sinnum frá mér hlátur í þetta skiptið held ég barasta :P

Skólin að byrja í næstu viku ;) Það verður mjög fínt, vill hafa allt í rútínu :) Með langa stranga stundatöflu og 23 eingingar :S spurning hvort maður meiki þetta :!: Veit ekki heldur hvort þetta séu neitt sérstaklega auðveld fög sem ég er í - Jarðfræði, Lífræði, Efnafræði og Eðlisfræði... og svo stærðfræði,enska og íslenska... Ef ég tek þetta svona eru mjög miklar líkur á að ég geti tekið þetta á 3 árum. Það er án efa svoldið freistandi :P Svo ef þið viiljið hitta mig e-ð í vetur þá verð ég upp í Borgó frá klukkan 8-16 og niðrí laugardal frá 17-21 :haha: En þetta er eins og ég vil hafa þetta :D Nóg að gera ;)

En jább Laugar um næstu helgi- Mí 15-22 ára... Planið að keppa í eins mörgum greinum og ég kemst yfir :lol::) Þar á lista eru meðal annars langstökk og kringlukast ;) 

Heyrist fólkið á heimilinu vera komið á stjá ;)

~Stefanía

sb.jpg picture by stefaniah


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 12:10:22 / stefania

myndir

 

Jeii Íris búin að hjálpa mér með myndirnar svo nú eiga þær eftir að streyma inn :)

Ég er bara í sumarfríi að hafa það gott með famíliunni 8) 

Blogga betur seinna ...

KV. Stefanía

(fuuult af myndum einnig á http://www.blog.central.is/fjormann) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 16:26:40 / stefania

Vantar góða myndasíðu

 

Halló :!: :D Hvað segi þið gott ? Ég er allavegana hress ;)

Kom heim úr frábæru ferðalagi á mánudaginn og er búinn að vera að vinna í sundlauginni seinustu daga ;)

En MÍ á Sauðárkróki var mjög fínt mót :) Árangurinn minn var svona lala ... Veit vel að ég get betur :$ Keyrði af stað í 400m og á beinu brautinni tók á móti manni svakalegur mótvindur... ég ætlaði sko ekki að gefa mig og bætti mig held ég í 200m í þessu hlaupi, Silja sem vanalega nær mér stuttu eftir fyrri beygjuna fór ekki fram úr mér núna fyrr en við vorum komnar inn í þá seinni :lol: En svo átti ég lítið sem ekkert eftir á bensíntanknum :^) ekki neitt mjög skinsamlega hlaupið.. Endaði allavegana í 3.sæti á eftir Helgu og Silju. Í 800m gerði ég mikil mistök sem ég læri vonandi bara af en kostuðu mig íslandsmeistaratitilinn :| En hún Stefanía nafna tók mig í bakaríið á endasprettnum :frown: Hún með góða bætingu ;) Svo náðum við 2.sætinu í 4*400m :haha: reyndar ekkert spes tími, getum miklu betur ;) Bjarni með bætingu í langstökki 7,30 ;) og tapað fyrsta sætinu með 1cm. Svenni líka með bætingu í 200m :haha: reyndar Bjarni líka :!: Allir í Fjörmanni að standa sig mjög vel ;)En alltaf gaman að keppa á Sauðárkróki :!:

Ég og Bjarni keyrðum svo austur til Húsavíkur og gistum eina nótt hjá ömmu Stefu, rúntuðum um Húsavík með Hönnu Jónu frænku og kvöddum hana því að nú er hún farin til Argentínu í eitt ár ;) Gama að koma þangað aftur og hitti Hönnu áður hún fór út :haha: Brunuðum svo lengra austur og lentum í 25° hita á Egilstöðum en áfram hélt ferðalagið til Hafnar í Hornafirði :) Fórum og kíktum á nýja völlinn og æfingu hjá USÚ og brunuðum svo í sveitina :haha: Alltaf gott að koma þangað. Svo vorum flökkuðum við á milli suðursveitar og Hafnar til að taka æfingar á nýja vellinum sem er MJÖG mjúkur. Fín afslöppun að vera þarna í sveitinni.

Svo var það unglingalandsmótið sem var mjög vel skipulagt ;) Keppti ekkert á föstudeginum, var bara e-ð að þjálfarast.. Á setningarathöfninni hlupu Bjarni, Svenni, Biggi (bblik) og Steini (HSÞ) 200m hlaup til að vígja brautina :D það var alveg magnað .. FULLT af fólki sem sat alveg við brautina báðum megin, get ímyndað mér að það hafi verið magnað að hlaupa þarna í gegn. Hefði viljað taka mynd af þessu en myndavélin mín ákvað að bila :$ Á laugardeginum keppti ég svo í langstökki, bæting 4,66 en gekk samt ekki það vel og svo kúluvarp.. veit ekki hvort ég eigi að gefa upp árangurinn þar :!:8|Á samt einstakan árangur þar að hafa kastað út á grasið við hliðiná haha .. Kastaði mun lengra í upphitun og það eru mörg vitni fyrir því ;) held samt að lengsta mælda kastið hafi verið um 6m ;) hehe Á sunnudagsmorgninum var það 100m sem ég hljóp EIN :!::!: Ótrúlega slöpp mæting í flokki 17-18 stúlkna :S vorum 5 þegar við vorum flestar 8| En já það var mjög spes... Eitthvað sem ég geri ekki aftur ;) Sleppti 800m af sömu ástæðu nennti ekki að fara að hlaupa þarna ein :S En svo unnum við fjölnisstelpurnar boðhlaupið eftir mikla baráttu við HSÞ ;)

Bikar um helgina :!: Þar ætlum við í Fjörmanni að leggjast öll á eitt og gera okkar besta og betra en það ;) :haha: Án efa skemmtilegasta mót sumarsins og mikill spenningur í gangi :lol: Bikarpartý á laugardaginn (sjá www.blog.central.is/fjormann)

Jææjja þá er ég búin ;)  Bráð vantar góða myndasiðu ef einhver veit um einhverja góða sem hægt er að copya myndir yfir á blog.central :!: :)

Kv. Stefanía

p.s. Náði bóklegaprófinu í gær ;) 8) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 15:53:18 / stefania

Sauðarkrókur ~ Suðursveit

 

Þá er þessi vika búin, frekar mikið að gera. Var nánast ekkert heima... Vinna í sundlauginni 8-13, æfing 14-16.30 og svo ökuskóli 17-21... En nú er ökuskólin búin og næst á dagskrá er skriflegaprófið ;) 

En um helgina er  Meistaramót Íslands á Sauðárkrók :haha: Keppi í 400m,800m,4*100m og 4*400m. Bara létt ;) Fer svo í brúðkaup á laugardaginn inn á Akureyri til frænku minnar :D 

Eftir helgi ætlum við Bjarni svo að fara í smá ferðalag. Förum til Húsavíkur og gistum eina nótt hjá ömmu ;) Ekki búin að koma þangað síðan fyrir lönu löngu... Hanna Jóna frænka að fara til Argentínu sem skiptinemi og maður verður nú að sjá hana e-ð aðeins áður :!:

Ætlum svo að fara í Suðursveitina :haha: Æfa á nýja vellinum á Höfn og slappa af. Keppi svo á unglinga landsmótinu um verslunarmannahelgina ;) Verður eflaust stuð :P Verða líklegast samt ekki margir keppendur í mínum flokki..

En þarf víst að fara að pakka niður

Stefanía  


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 10:02:01 / stefania

Home sweet home

 

Komin heim, vá hvað það er alltaf gott að koma heim :) Svaf frekar lítið þarna úti vegna mikils hita og harðs rúms.. hélt ég myndi sofa heilu dagana þegar ég kæmi heim en ég er haldin einhverri ekki sofa sýkingu :|Vakna 8.30 á morgnana og heng heima og geri ekki rass :P

Fer líklegast að vinna e-ð aðeins í sundlauginni eftir helgi en fram af því er ég húshjálpin hennar mömmu ;)

En það er mikið að gerast næstu vikurnar

  • Ökuskóli 2 í næstu viku ;) svo líklegast bara bóklegaprófið
  • MÍ aðalhluti á Sauðárkrók
  • Unglingalandsmót á Höfn !
  • Bikar keppnin í Reykjavík
  • Bruna norður og ná restinni af Fiskideginum
  • Vera þar þangað til SKÓLINN byrjar sem er 21. ágúst
  • MÍ 15-22 ára á Laugum
  • Fæ bilprófið :haha:
  • NM í byrjun September í Danmörku

Svo ég verð mikið á ferðinni næstu helgar og held ég bara engin helgi laus hjá mér fyrr en í september ;) Að undan skildri næstu helgi sem verður tekinn i afslöppun :haha:

Ég ætla líka að óska foreldrum mínum til hamingju með 20 ára brúðkaupsafmælið þeirra sem er í dag ;) :haha: 

En farin að taka til :) 

~ Stefanía  

P.s. set myndirnar inn á eftir !

P.s.2. Svenni og Helga að keppa á EM 20 ára og yngri ... Allir að senda þeima GÓÐA strauma ;)  


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 12:49:24 / stefania

Keppni ad ljuka

 

Ta hafa allir nema Helga Margret lokid keppni, en hun er eins og stendur i 5. saeti i trautinni og hleypur 800m klukkan 18.28 (16.28) Allir ad senda henni alla sina orku og strauma :haha: :!:  

Eins og eflaust flestir vita gekk Einari mjog vel i 8-trautinni.. Baeti sig i flest ollu sem er alveg magnad i traut, endadi i 6. saeti, besti arangur islendings ever a tessu moti og fekk 5999 stig ;)

Orn var otrulega nalaegt tvi ad na inn i urslitin i kringlukasti og Asgeir og Gummi bara ad standa sig agaetlega :) Fyrsta stormotid...

Tetta 800m hlaup sem eg fekk svo ad hlaupa for ekki alveg eins og eg hafdi planad :|:S Hlj'op reyndar fyrstur 400m nakvaemlega eins og eg aetladi mer.. 32 - 32,5 En a milli 400-600m fannst mer sjalfri eg vera ad auka og folkid i stukunni sagdi dad sama en splittid var 36,5 :o alltof haegt.. Svo var tetta bara eins og i 400m, ordin pinnnnn stif tegar 60m voru i mark :whut: eins og Trainn sagdi ta tarf eg e-d ad lata kikja a bensintankinn :lol:

En tad er buid ad vera alveg frabaert vedur herna i dag 8) Ma og Pa logdu af stad i morgun til Kroatiu og eiga ad vera komin heim annad kvold :D Frabaert ad hafa godan studning i stukunni :haha:

Buinn ad vera ad taka e-d af myndum sem eg hendi inn um leid og eg kem heim ;)

ALLIR AD MUNA AD HUGSA TIL HELGU OG SENDA HENNI FULLT FULLT AF ORKU KLUKKAN 16.28 :!:

-Stefania Bensinlausa :frown:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9